Anna Ingadóttir er sunnlenski matgæðingur vikunnar að þessu sinni.
Takk Hrafnhildur mín, við höfum nú lengi haft matarást á hvor annarri.
Þar sem ég er mikill ástríðukokkur og helstu bækur sem ég les og glugga í eru matreiðslubækur þá á ég samt sem áður erfitt með að ákveða hvaða uppskrift ég gef upp hér, því ég elda sjaldnast eftir uppskriftum. Þó er ein uppskrift mjög vinsæl í stórfjölskyldunni þótt hún hafi ekki hljómað vel þegar ég bauð upp á hana í fyrsta skipti. Ég er mikill dassari en núna ég reyni að gefa upp sirka magn. Ég mæli hinsvegar með smá dassi og ástríðu í allri matargerð.
Túnfisklasagne
Lasagneplötur
Hvít sósa
2,5-3 dl matreiðslurjómi/rjómi
100 gr. rifinn ostur
Sósujafnari eða smá hveitijafningur
Salt
Pipar
Rifinn parmesanostur
Rjóminn hitaður og osturinn bræddur við vægan hita. Sósujafnarinn/hveitijafningurinn notaður til að þykkja sósuna ef þarf, kryddað með salti og pipar og parmesanostinum bættvið.
Fylling
1 box sveppir
Smjörklípa
Smá sítrónusafi
2 dósir túnfiskur í olíu
2-3 tómatar
Rifinn parmesanostur
Rifinn ostur
Sveppirnir sneiddir og steiktir upp úr smjöri, smá sítrónusafa dreypt yfir. Tómatarnir skornir í sneiðar.
Svo er bara að setja lag á lag í fat sem er hentugt fyrir lasagne.
Setjið 1/3 af hvítu sósunni á botninn á lasagne fati. Sáldrið parmesanosti yfir, þekið með lasagneplötum. Setjið sósu þar yfir, síðan er sveppunum dreift yfir og annað lag aflasagneplötum. Næst er að setja allan túnfiskinn yfir og örlítið af olíunni. Piprað. Svo er þriðja laginu af lasagneplötum lagðar yfir, afgangnum af sósunni hellt yfir og tómötum raðaðofan á. Loks er rifnum osti stráð yfir.
Bakist í 200 gráðum heitum ofni í ca 20-30 mínútur.
Þægilegra er að hafa þetta svona uppsett þá gengur þetta hraðar:
Ég ber alltaf fram einfalt salat með þessu, sker niður rauðlauk og tómata í, blanda saman, skvetti góðri ólífuolíu yfir og smá salt og pipar.
Einnig er gott að bjóða upp á gott hvítlauksbrauð.
Ég ætla að skora á Unni systir að deila góðri uppskrift með okkur næst, það er alltaf hægt að stóla á góðan mömmumat hjá henni.