![Bókinni um Moniku vel tekið Bókinni um Moniku vel tekið](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2017/07/konanidalnum.jpg?fit=768%2C1187&ssl=1)
Bókin Konan i dalnum og dæturnar sjö komst í annað sæti á metsölulista Eymundsson skömmu eftir að hún kom út og er greinilegt að þessi merka ævisaga á enn fullt erindi við þjóðina.
Bókin kom fyrst út árið 1954 en í henni segir Guðmundur G. Hagalín magnaða hetjusögu Moniku Helgadóttur sem var ekkja og einstæð móðir átta barna í skagfirskum afdal. Hún hafði á þessum tíma hlotið Fálkaorðu forseta Íslands fyrir dugnað sinn og þrautseigju.