Í ljós hefur komið að sundlaugakarið í Sundlaug Stokkseyrar er mjög illa farið eftir 31 árs notkun.
![](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2023/12/Sundlaug-Stokkseyri-1.png?resize=201%2C268&ssl=1)
Í tilkynningu frá Árborg segir að ljóst sé að það þurfi að fara í umfangsmeiri viðgerðir á kari Sundlaugarinnar á Stokkseyri, þar sem skipta þarf um allar hliðar á lauginni ásamt botni og dúk. Einnig verði farið í að mála potta og hugað verði að viðhaldi á öðrum þáttum á lóð og húsi sundlaugarinnar. Framkvæmdir eru hafnar en vegna umfangs skemmda er óljóst hvenær framkvæmdum lýkur.