Karlakór Selfoss heldur sína árlegu jólatónleika í Selfosskirkju þriðjudaginn 19. desember.
Jólatónleikar Karlakórs Selfoss eru ómissandi viðburður í jólaundirbúningi margra Sunnlendinga, efnisskráin er fjölbreytt og má þar finna ýmiskonar léttmeti ásamt hátíðlegum söng, eitthvað sem kemur öllum í jólaskapið.
Stjórnandi Karlakórs Selfoss er Skarphéðinn Þór Hjartarson og hefur hann útsett mörg þeirra laga sem á efnisskránni eru. Píanóleikari kórsins er Jón Bjarnason og hann stjórnar einnig Skálholtskórnum.
Tónleikarnir hefjast klukkan 20. Aðgangur er ókeypis en tekið er á móti frjálsum framlögum sem renna óskipt í Sjóðinn góða. Posi verður á staðnum.