16.1 C
Selfoss

Tímamót í sögu Vísinda- og rannsóknarsjóðs Suðurlands

Vinsælast

Tímamót urðu í sumar þegar Fræðslunetið ákvað að fela Háskólafélaginu reksturs sjóðsins og er hann nú því alfarið í umsjón félagsins.

Fyrsta úthlutun Vísinda- og rannsóknarsjóðs Suðurlands var árið 2002 en síðan þá hefur sjóðurinn styrkt sunnlensk nemendaverkefni á hverju ári. Sjóðurinn var upphaflega stofnaður af Fræðsluneti Suðurlands en árið 2010 kom Háskólafélag Suðurlands inn sem samstarfsaðili.

Ýmis tækifæri felast í þessari tilfærslu og því var ákveðið rýna ferlið og koma með tillögur að uppfærslum. Sú fyrsta fól í sér að útbúa umsóknarform inni á heimasíðu HfSu í því ljósi að samhæfa innsendar umsóknir og einfalda ferlið. Önnur uppfærsla fól í sér að útbúa lógó fyrir sjóðinn og gera upplýsingar um hann aðgengilegar á heimasíðu félagsins. Þriðja uppfærslan og líklega sú stærsta fól í sér að endurhugsa umsóknartímabilið með það fyrir augum að auðvelda nemendum að sækja um, en frá og með næsta umsóknarfresti verður opið fyrir umsóknir til 5. janúar 2024 og styrkþegum tilkynnt um úthlutun í lok janúar. Eftir sem áður verður styrkþegum boðið til hátíðarfundar Vísinda- og rannsóknarsjóðs þar sem þeir veita styrknum viðtöku úr hendi forseta Íslands.

Auk áðurnefndra breytinga hafa nokkrir nýir styrktaraðilar komið inn í hópinn en slíkt skiptir svona sjóð gríðarlegu máli og kann Háskólafélagið þeim miklar þakkir. Yfirlit styrktaraðila má nálgast hér en aðrir sem kunna að hafa áhuga á að styrkja sjóðinn og þannig sunnlensk nemendaverkefni eru hvattir til að hafa samband við framkvæmdastjóra Háskólafélagsins í netfangið ingunn@hfsu.is

42 verkefni á 20 árum

Frá upphafi sjóðsins hafa 42 verkefni fengið  styrk frá sjóðnum. Verkefnin eru af öllum toga og geta verið allt frá BA/BS verkefnum til doktorsverkefna en hægt er að kynna sér eldri verkefni á heimasíðu Háskólafélags Suðurlands / www.hfsu.is

Búið er að opna  fyrir umsóknir til úthlutunar í janúar 2024

Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir í sjóðinn en áhugasamir nemendur geta kynnt sér betur forsendur umsókna í sjóðsreglunum. Umsóknarformið er jafnframt aðgengilegt á heimasíðu félagsins hér.

Háskólafélag Suðurlands hvetur alla nemendur sem eru að vinna að lokaverkefnum sem hafa gildi fyrir sunnlenskt samfélag, að kynna sér sjóðinn og meta hvort þeirra verkefni eigi þar erindi. Ef einhverjar spurningar vakna hvetjum við nemendur til þess að hafa samband í netfangið hfsu@hfsu.is

Háskólafélag Suðurlands

Nýjar fréttir