15.6 C
Selfoss

YAP kynningardagur fyrir leikskólastarfsfólk á Suðurlandi

Vinsælast

Boðið verður upp á YAP (Young athelete project) kynningu fyrir stjórnendur og starfsfólk leikskóla á Suðurlandi í leikskólanum Jötunheimum á Selfossi á milli klukkan 10-12 í dag, þriðjudaginn 7. nóvember. Markmið er að vekja áhuga á og fá sem flest til að vinna með YAP verkefnið í leikskólum Suðurlands. Árangur er athyglisverður og vonast er til þess að sem flestir stjórnendur leikskóla á Suðurlandi sjái sér fært að mæta.

Á kynningunni mun Sigurlín J. Baldursdóttir, íþróttakennari í Jötunheimum, kynna starf sitt. Tveggja ára börn munu spreyta sig í æfingum, Anna Karólína Vilhjálmsdóttir, framkvæmdastjóri Special Olympics á íslandi kynnir innleiðingu YAP og Ásta Katrín Helgadóttir íþróttakennari og Þóra Sigrún Hjaltadóttir leikskólastjóri í heilsuleikskólanum Skógarási á Ásbrú fara yfir YAP hreyfiþjálfun. Þá verða umræður og fyrirspurnir teknar fyrir, auk þess að næstu skref á Suðurlandi verða rædd.

Stuðlar að markvissri hreyfiþjálfun

Young athlete project eða YAP er alþjóðlegt verkefni á vegum Special Olympics samtakanna. Markmið er að stuðla að markvissri hreyfiþjálfun barna á aldrinum 2 til 7 ára. YAP er í grunninn hreyfiþjálfun en nýtist einnig sem verkfæri sem tengir saman hreyfiþjálfun, málþroska og félagsfærni. Æfingar sem unnið er með taka fyrir ákveðna þætti sem fylgt er eftir og markviss nálgun nær fram markverðum árangri.

Mörg önnur námstækifæri sem skipulögð hreyfing hefur í för með sér fyrir börn er að þau læra ekki bara grunnþætti hreyfiþroska heldur þróa einnig með sér mikilvæga færni til náms. Þar er m.a. verið að tala um að skiptast á, læra að deila, fara eftir fyrirmælum og skilja leiðbeiningar sem þeim eru gefnar. Í skipulögðum hreyfistundum er hægt að blanda inn í hreyfiæfingarnar, stærðfræði, orðaforða og málörvun, flokkun,  ofl.  Hinsvegar er það ekki nóg að vera einungis í frjálsum leik í hreyfisal, þar sem frjáls leikur eflir ekki markvisst grunnþætti hreyfiþroska barna (Logan, Lucas, Robinson og Wilson, 2011). Fagmenn þurfa að kunna að leiðbeina, hvetja og stýra hreyfingu barnanna, því að þannig náum við tilætluðum árangri. Enn fremur hefur verið sýnt fram á að snemmtæk íhlutun við hreyfivanda eykur hreyfifærni barna með slakan hreyfiþroska (Sigmundsson og Petersen 2000).

Nýjar fréttir