Menningarmiðstöð Hornafjarðar hlaut Menningarverðlaun Suðurlands árið 2023. Viðurkenningin var veitt á ársþingi Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) í Vík þann 26. október sl. en alls bárust 19 tilnefningar um 14 verkefni af öllu Suðurlandi.
„Í rökstuðningi dómnefndar segir að Menningarmiðstöð Hornafjarðar hafi unnið glæsilegt starf í þágu menningar í Sveitarfélaginu Hornafirði og gefið einstaklega jákvæða mynd af Austur- Skaftafellssýslu, menningu og menningararfi sýslunnar. Verðlaunin eru samfélags- og hvatningarverðlaun SASS á sviði menningar á Suðurlandi,“ segir í fréttatilkynningu frá SASS.
Þá segir einnig að starf Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar sé metnaðarfullt. „Þar sem áhersla er lögð á samfélagið, börnin og fjölmenningu. Menningarmiðstöðin starfrækir ýmis söfn, meðal annars bóka- og héraðsskjalasafn ásamt Svavarssafni sem er listasafn Svavars Guðnasonar listmálara. Kjarni safneignarinnar eru verk eftir Svavar og fleiri hornfirskra málara. Menningarmiðstöðin hefur um árabil boðið upp á margbreytilegt barnastarf svo sem listasmiðjur og krakkaklúbba á söfnum stofnunarinnar, einnig sumarstarf þar sem börn eru kynnt fyrir náttúru, umhverfi, listum og öðrum fróðleik.“
Árlega eru fjölmargar sýningar og annað viðburðahald sem gera menningu hátt undir höfði og hefur Menningarmiðstöðin vakið athygli á landsvísu fyrir sitt öfluga starf. Gott samstarf er við fjölmörg félagasamtök og einstaklinga.