Framkvæmdir eru hafnar við lagfæringar á svæðinu við skyndibitastaðina sem eru við enda Ölfusárbrúar á Selfossi. Jafnframt verður svæðið norðan við Selfossbíó lagfært og gerðar ráðstafanir til að koma í veg fyrir að ekið sé upp á grassvæði við inngang bíósins við Selfossveg. Meðan á framkvæmdum stendur verður lokað fyrir aðra akstursleiðina inn á svæðið af Eyravegi og bílastæðum fjölgað. Breytingarnar eru gerðar í samráði við eigendur húsnæðis og rekstraraðila á svæðinu.
Breytingar á svæðinu við enda Ölfusárbrúar
![bruartorg](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2017/08/bruartorg.jpg?resize=1000%2C667&ssl=1)