![Íslenskar söngperlur á Hvolsvelli fimmtudaginn 10. ágúst Íslenskar söngperlur á Hvolsvelli fimmtudaginn 10. ágúst](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2017/08/songberlur2.jpg?fit=768%2C494&ssl=1)
![](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2017/08/songperlur1.jpg?resize=1000%2C1500&ssl=1)
Tónleikar undir yfirskriftinni „Íslenskar söngperlur í áranna rás“ verða haldnir í félagsheimilinu Hvoli á Hvolsvelli fimmtudaginn 10. ágúst nk. kl. 20:00. Þar munu koma fram Þórhildur Örvarsdóttir söngkona og Helga Kvam píanóleikari. Á dagskrá eru íslenskar söngperlur allt frá Sigvalda Kaldalóns til Megasar.
Þórhildur og Helga hafa starfað saman í nokkur ár og eru báðar í kvennahljómsveitinni Norðlenskar konur í tónlist. Þær opnuðu tónleikaröð Listasumars á Akureyri með dagskránni Íslenskar söngperlur í áranna rás fyrir fullum sal. Þórhildur og Helga eru þekktar fyrir einstakan samhljóm og skemmtilega sviðsframkomu og er óhætt að lofa góðri kvöldstund þar sem íslensku söngperlurnar í gegnum árin munu draga fram minningar þeirra sem á hlýða. Miðaverð er krónur 2500 við innganginn.