10.6 C
Selfoss

Krafturinn liggur í fjölbreytileikanum í Mýrdalshreppi

Vinsælast

Regnboginn, hin árlega samfélagshátíð Mýrdælinga, verður haldin í 17. sinn dagana 11. – 15. október og verður mikið um dýrðir. Alla daga verða fjölbreyttir viðburðir auk þess sem fyrirtæki og íbúar eru með litrlík tilboð, opin hús og taka vel á móti gestum og gangandi. Í ár er þemað “krafturinn” sem vísar jafnt í kraftinn sem býr í samfélaginu og til kraftsins í nærumhverfinu, en í ár eru 105 ár frá síðasta Kötlugosi.

Syngjandi gleði við gömlu rafstöðina. Ljósmynd: Aðsend.

Mýrdalshreppur fer í hátíðarbúning er íbúar prýða götur, hús og póstkassa regnbogalitum auk þess sem myndlista- og ljósmyndasýningar eru opnar alla helgina,. Kammerkór Tónskóla Mýrdalshrepps kemur á óvart í Icewear á miðvikudeginum og Foreldrafélag Víkurskóla stendur fyrir syngjandi gleði með Unni Birnu á Syngjandanum, Central Park Víkurbúa. Á fimmtudeginum stendur Enskumælandi ráð Mýrdalshrepps fyrir fyrstu FIFA Playstation keppni Regnbogans, búið er að teikna upp skemmtilega leið fyrir pöbbarölt í bænum og hljómsveitin Vinir Jenna bjóða í notalega stemmningu í félagsheimilinu Leikskálum. Á föstudeginum fagnar þúsundþjalasmiðurinn Svavar Guðmundsson útgáfu rauðu og jafnframt 4. bókarinnar í bókaseríunni “Sjón þín, hugsun þín, skilningur þinn” í Kötlusetri  og boðið er upp á hljóðlaust diskó fyrir dansara. Þá um kvöldið er svo alþjóðlega matarsmakkið, sem hefur aldeilis slegið í gegn á síðustu árum og sannar hið fornkveðna, að leiðin að samfélagshjartanu er í gegnum magann.

Listaverk á Skaftfellingsskemmu. Ljósmynd: Aðsend.

Laugardagurinn hefst með menningargöngu Ferðafélags Mýrdælinga undir styrkri stjórn Möggu Steinu og eftir hana er hægt að kíkja við hjá starfsfólki Mýrdalshrepps í vöfflukaffi og á Regnbogamarkaðinn, sem er litríkur, fjölbreyttur og skemmtilegur. Jói Fel breytir bílskúr tengdaforeldranna í listasmiðju og sýnir ný verk. Skemmtileg barnadagskrá verður í íþróttamiðstöðinni með Leikhópnum Lottu, loftboltum, hoppukastölum og veltibíllinn frá Sjóvá verður á svæðinu! Í Skaftfellingsskemmu munu krakkarnir á leikskólanum Mánalandi vígja nýtt glæsilegt vegglistaverk Kötluseturs eftir listamanninn Maciej Lenda ásamt því að opna sína eigin sýningu “Sjáðu hvað ég get” og mýrdælska söngkonan Ragna Björg mun taka nokkur lög. Þýskur andi liggur svo yfir Smiðjunni – brugghúsi sem býður í Októberfest með öllu tilheyrandi. Það er enginn annar en Pétur Jóhann sem kitlar hláturtaugarnar á laugardagskvöldinu með glænýtt efni og Atli skemmtanalögga lýkur svo fjölbreyttum degi með ekta sveitaballi.

Á sunnudeginum býður Tónskóli Mýrdalshrepps til glæsilegra tónleika með Dr. Nínu Margréti Grímsdóttur. Tónleikarnir eru tileinkaðir Dr. Páli Ísólfssyni en hann hefði orðið 130 ára í ár. Málþingið Katla 105 er tileinkað viðbragðsaðilum almannavarna í Mýrdalshreppi og mun Slökkvilið Mýrdalshrepps, Björgunarsveitin Víkverji og Víkurdeild Rauða kross Íslands vera með fræðslu og mæta með bíla, tól og tæki. Evrópuverkefnið #FirstAid+ mun einnig kynna sig og bjóða gestum að prófa VR skyndihjálpargleraugu. Hátíðarkaffið á Hótel Kötlu verður svo tileinkað fjáröflun fyrir nýjum bíl Víkverja með happdrætti og munu Alexandra Chernyshova, sópransöngkona og Nína Margrét Grímsdóttir píanóleikari flytja klassískar söngperlur. GDRN og Magnús Jóhann ljúka Regnboganum með töfrandi tónum í Víkurkirkju. Mýrdælinga hlakka til glæsilegrar dagskrár og bjóða öll velkomin!

Hægt er að sjá alla dagskrána á Facebooksíðu Regnbogans.

Nýjar fréttir