![Unnur Malín í Sólheimakirkju Unnur Malín í Sólheimakirkju](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2017/07/unnurmalin2.jpg?fit=768%2C528&ssl=1)
![](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2017/07/unnurmalin1.jpg?resize=1000%2C1500&ssl=1)
Laugardaginn 29. júlí klukkan 14:00 verður Unnur Malín Sigurðardóttir í Sólheimakirkju með skipulagt kaós sem mætir kaótísku skipulagi sem leiðir gesti í ferðalag um lendur huga og hjarta.
Seinni partinn eða klukkan 16 verður Ágúst Backman, áhugamaður um moltugerð, með kynning á ormamoltu við Grænu Könnuna. Síðan eru sýningarnar „Hvað hef ég gert!“ í Sesseljuhúsi og samsýning vinnustofa í Ingustofu. Verslun og kaffihús verða opin og því um að gera að koma og njóta Menningarveislu Sólheima.