Um síðustu helgi var í fyrsta sinn úthlutað úr Menningarsjóði Rangárþings ytra sem komið var á fót á þessu ári. Markmið sjóðsins er að efla og styrkja menningarstarf í sveitarfélaginu. Að þessu sinni var það Leikfélag Rangæinga sem fékk úthlutað 250.000 kr. Markmið Leikfélags Rangæinga er að setja upp leiksýningu á komandi vetri og mun það svo sannarlega verða lyftistöng fyrir menningarstarf í sveitarfélaginu.
Leikfélag Rangæinga fær styrk úr Menningarsjóði Rangárþings ytra
![OLYMPUS DIGITAL CAMERA](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2023/08/Uthlutun-ur-Menningarsjod-Rangarthings-ytra-scaled.jpg?resize=1068%2C801&ssl=1)