Lögreglan á Suðurlandi hefur til rannsóknar líkamsárás gegn konu aðfaranótt 21. júní 2023 á milli kl. 05:00-05:30 á Selfossi. Árásin var gerð við undirgöng undir Eyrarveg, við hringtorgið Eyrarvegur/Hagalækur/Suðurhólar.

Hafi einhver orðið vitni að þessari árás er viðkomandi vinsamlegast beðinn um að hafa samband við lögregluna í gegnum netfangið: sudurland@logreglan.is.