Brian Jørgensen motocrossþjálfari og fyrrum atvinnumaður í motocross kom til Íslands á dögunum og hélt námskeið fyrir iðkendur UMFS í samstarfi við Vélhjólaklúbbinn Vík. Námskeiðið var vel heppnað og fjölmargir nýttu sér tækifærið að fá heimsklassa þjálfun. Brian þjálfar bæði landslið og marga bestu atvinnumenn í Evrópu í motocross og er því frábært að fá hann til að koma og þjálfa hjá okkur á Selfossi.
Brian er svo væntanlegur aftur til landsins til að taka þátt í Route 1 – hringferð í kringum landið sem hefst 10. júlí 2023.
![](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2023/06/Unknown-10.jpeg?resize=696%2C522&ssl=1)
![](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2023/06/Unknown-2-2.jpeg?resize=696%2C521&ssl=1)
![](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2023/06/Unknown-3-2.jpeg?resize=696%2C522&ssl=1)