![Klarinettuverk í Sólheimakirkju um helgina Klarinettuverk í Sólheimakirkju um helgina](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2017/07/kristi_hanna2.jpg?fit=768%2C495&ssl=1)
![](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2017/07/kristi_hanno1.jpg?resize=199%2C300&ssl=1)
Laugardaginn 15. júlí nk. kl. 14:00 mun Kristi Hanno, klarinettuleikari frá Bandaríkjunum, flytja nokkur klarinettuverk eftir ýmis tónskáld á Menningarveislu Sólheima í Sólheimakirkju.
Upplagt er að kíkja við á Sólheimum og skoða í leiðinni sýninguna „Hvað hef ég gert“ í Sesseljuhúsi og samsýningu vinnustofa í Ingustofu. Verslun og kaffihús eru á staðnum og því um að gera að koma og njóta. Allir eru velkomnir á Sólheima.