Sveitarfélagið Ölfus varð formlega aðili að Heilsueflandi samfélagi (HSAM) þann 24. maí síðastliðinn þegar Sandra Dís Hafþórsdóttir staðgengill bæjarstjóra og Alma D. Möller landlæknir undirrituðu samning þess efnis í ráðhúsi Ölfuss í Þorlákshöfn.
Viðstaddir voru íbúar á ýmsum aldri þar með talið aðilar úr bæjarstjórn, starfsfólk og fulltrúar í HSAM stýrihópi Ölfuss. Nemendur í 5.-7. bekk grunnskóla Þorlákshafnar sýndu frumsaminn dans við lag Júlí Heiðars tónlistarmanns og leikara úr Þorlákshöfn sem unninn var í umsjá Önnu Berlindar Júlídóttur danskennara. Fulltrúar frá skólum bæjarins, íþróttafélags, heilsugæslu og eldri borgara eiga sæti í HSAM stýrihópnum auk þess sem aðrir hagaðilar verða kallaðir að starfinu eftir þörfum. Jóhanna M. Hjartardóttir sviðsstjóri fjölskyldu- og fræðslusviðs og Ragnar M. Sigurðsson íþrótta- og tómstundafulltrúi fara fyrir hópnum og eru HSAM tengiliðir Ölfuss.
Meginmarkmið Heilsueflandi samfélags er að styðja samfélög í að vinna með markvissum hætti að því að skapa umhverfi og aðstæður sem stuðla að heilbrigðum lifnaðarháttum, heilsu og vellíðan allra íbúa. Í slíku samfélagi er heilsa og líðan íbúa í fyrirrúmi í stefnumótun og aðgerðum á öllum sviðum. Starf Heilsueflandi leik-, grunn- og framhaldsskóla, Heilsueflandi vinnustaða og heilsuefling eldri borgara er mikilvægur liður í starfi Heilsueflandi samfélags. Með innleiðingu Heilsueflandi samfélags vinna sveitarfélög meðal annars að innleiðingu heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna.
Sveitarfélagið Ölfus er 41. sveitarfélagið sem gerist Heilsueflandi samfélag og búa nú um 96% landsmanna í slíku samfélagi.