Ár hvert hefur Kvenfélag Stokkseyrar staðið fyrir kaffisölu á sjómannadaginn. Nú í ár rann allur ágóði sölunnar til leikskólans Æskukots á Stokkseyri. Á myndunum má sjá félaga í stjórn félagsins afhenda Sigríði Birnu leikskólastjóra gjafabréf að upphæð 150.000 og leikföng að andvirði 100.000 kr.