13.4 C
Selfoss

Moskvít tryllir lýðinn á Sviðinu

Vinsælast

Sunnlenska hljómsveitin Moskvít blæs til sinna fyrstu tónleika á Sviðinu í miðbæ Selfoss föstudaginn 5. maí klukkan 21:00.

Moskvít hefur gefið út eina plötu sem kom út árið 2021 og ber nafnið Human Error. Tónlistinni sem Moskvít spilar mætti lýsa sem vestrænum blús, poppi & rokki. Þeir hafa einnig gefið út nokkur lög sem eru hluti af nýrri plötu, má þar nefna Superior design, Perfect little wonder og það allra nýjasta, Chance.

Hljómsveitina Moskvít skipa þeir Sigurjón Óli Arndal- söngur/bassi, Alexander Örn Ingason á trommur, Jón Aron Lundberg á píanó, Paolo Decena á gítar og Guðmundur Helgi Eyjólfsson á gítar.

Miðasala er hafin á tix.is.

Nýjar fréttir