Lokakvöld Suðurlandsdeildar Cintamani í hestaíþróttum í Rangárhöllinni á Hellu fór fram sl. þriðjudagskvöld. Keppt var í tveimur greinum, skeiði og tölti. Staðan fyrir lokakvöldið var hnífjöfn á meðal efstu tveggja liða en Nonnenmacher leiddi og þar á eftir kom Árbæjarhjáleiga/Hjarðartún, það var svo mjótt á munum hjá liðunum í sæti þrjú til sex.
Það fór svo að lið Árbæjarhjáleigu/Hjarðartúns stóð uppi sem sigurvegari deildarinnar annað árið í röð. Í öðru sæti var lið Nonnenmacher og Vöðlar/Snilldarverk/Sumarliðabær í því þriðja. Við óskum liðunum innilega til hamingju með frábæran árangur í vetur!
Hér má sjá heildarniðurstöðu Suðurlandsdeildar Cintamani í hestaíþróttum 2023.
Sæti | Lið | Stig |
1. | Árbæjarhjáleiga / Hjarðartún | 376 |
2. | Nonnenmacher | 342 |
3. | Vöðlar / Snilldarverk / Sumarliðabær | 333 |
4. | Húsasmiðjan | 312 |
5. | Black Crust Pizzeria | 311 |
6. | Töltrider | 305 |
7. | Hemla / Hrímnir / Strandarhöfuð | 276 |
8. | Krappi | 262,5 |
9. | Múli hrossarækt / Hestasál ehf. | 189,5 |
10. | Dýralæknir Sandhólaferju | 176 |
11. | Syðri-Úlfsstaðir / Traðarás | 174 |
12. | Nagli | 166,5 |
13. | Fiskars | 71,5 |
Það er því miður svo að neðstu tvö liðin detta úr deildinni en þau hafa samt sem áður staðið sig frábærlega í vetur og þökkum við þeim kærlega fyrir þátttökuna í deildinni. Önnur lið hafa áunnið sér áframhaldandi keppnisrétt.
Við þökkum öllum sem komið hafa að deildinni í vetur, þetta var magnað tímabil!
Úrslit kvöldsins voru eftirfarandi:
Í skeiðinu voru margir frábærir sprettir en það fór svo að lið Húsasmiðjunnar og lið Black Crust Pizzeria voru jöfn í liðkeppninni. Bestu spretti kvöldsins áttu í flokki atvinnumanna Helga Una Björnsdóttir og Jarl frá Kílhrauni sem flugu í gegnum Rangárhöllina á tímanum 5.53 sek en þau kepptu fyrir lið Nonnemacher og í flokki áhugamanna Sanne Van Hezel á Völundi frá Skálakoti sem flugu í gegnum Rangárhöllina á tímanum 5.88 sek en þau kepptu fyrir lið Húsasmiðjunnar.
Efstu sex í skeiði má sjá hér en nánari niðurstöður má sjá í LH Kappa appinu.
Atvinnumenn
Sæti | Knapi | Hross | Tími | Lið |
1 | Helga Una Björnsdóttir | Jarl frá Kílhrauni | 5,53 | Nonnenmacher |
2 | Hans Þór Hilmarsson | Vorsól frá Stóra-Vatnsskarði | 5,58 | Árbæjarhjáleiga /Hjarðartún |
3 | Sigurður Sigurðarson | Drómi frá Þjóðólfshaga 1 | 5,70 | Krappi |
4 | Hjörvar Ágústsson | Orka frá Kjarri | 5,77 | Töltrider |
5 | Bjarni Sveinsson | Sturla frá Bræðratungu | 5,92 | Múli hrossarækt / Hestasál ehf |
6 | Hlynur Guðmundsson | Klaustri frá Hraunbæ | 5,96 | Black Crust Pizzeria |
Áhugamenn
Sæti | Knapi | Hross | Tími | Lið |
1 | Sanne Van Hezel | Völundur frá Skálakoti | 5,88 | Húsasmiðjan |
2 | Vilborg Smáradóttir | Klókur frá Dallandi | 5,99 | Black Crust Pizzeria |
3 | Gyða Sveinbjörg Kristinsdóttir | Snædís frá Kolsholti 3 | 6,01 | Nagli |
4 | Helgi Gíslason | Hörpurós frá Helgatúni | 6,07 | Múli hrossarækt / Hestasál ehf |
5 | Brynjar Nói Sighvatsson | Tígull frá Bjarnastöðum | 6,11 | Töltrider |
6 | Sophie Dölschner | Sæla frá Hemlu II | 6,19 | Hemla / Hrímnir / Strandarhöfuð |
Keppnin í tölti var æsispennandi og hestakosturinn alveg hreint magnaður í báðum flokkum. Ljóst var að allt þyrti að ganga upp hjá liðum Nonnenmacher og Árbæjarhjáleigu/Hjarðartúns því baráttan um fyrsta sæti deildarinnar var ennþá hnífjöfn eftir skeiði.
Lið Töltrider sigraði liðakeppni í tölti sem var svo sannarlega viðeigandi. Lið Töltrider átti tvo knapa í úrslitum og tvo rétt fyrir utan. Elvar Þormarsson og Heilun frá Holtabrún lentu í 3. – 4. sæti og Hjörvar Ágústsson og Öld frá Kirkjubæ enduðu í 9. Sæti í flokku atvinnumanna. Brynjar Nói Sighvatsson og Urður frá Strandarhjáleigu lentu í 3. Sæti og Þórunn Kristjánsdóttir á Dimmu frá Eystri-Hól voru næstu fyrir utan úrslit í flokku áhugamanna. Glæsilegur árangur hjá liði Töltride.
Ljóst var eftir töltkeppnina að lið Árbæjarhjáleigu/Hjarðartúns hafði sigrað deildina í ár en knapar þeirra sigruðu bæði flokk áhugamanna og atvinnumanna. Það voru þau Hekla Katharína Kristinsdóttir á Lilju frá Kvistum sem hlutu 7.67sem sigruðu flokk atvinnumanna og Hermann Arason á Náttrúnu Ýr frá Herríðarhóli sem hlutu 7.40 sem sigruðu flokk áhugamanna.
Úrslit atvinnumanna:
Sæti | Knapi | Hross | Einkunn | Lið |
1 | Hekla Katharína Kristinsdóttir | Lilja frá Kvistum | 7,67 | Árbæjarhjáleiga / Hjarðartún |
2 | Kristín Lárusdóttir | Strípa frá Laugardælum | 7,44 | Black Crust Pizzeria |
3-4 | Ólafur Ásgeirsson | Fengsæll frá Jórvík | 7,33 | Vöðlar / Snilldarverk / Sumarliðabær |
3-4 | Elvar Þormarsson | Heilun frá Holtabrún | 7,33 | Töltrider |
5 | Vignir Siggeirsson | Kveikja frá Hemlu II | 7,28 | Hemla / Hrímnir / Strandarhöfuð |
6 | Jóhann Kristinn Ragnarsson | Kvarði frá Pulu | 7,17 | Vöðlar / Snilldarverk / Sumarliðabær |
Úrslit áhugamanna
Sæti | Knapi | Hross | Einkunn | Lið |
1 | Hermann Arason | Náttrún Ýr frá Herríðarhóli | 7,39 | Árbæjarhjáleiga / Hjarðartún |
2 | Katrín Sigurðardóttir | Ólína frá Skeiðvöllum | 7,17 | Húsasmiðjan |
3 | Brynjar Nói Sighvatsson | Urður frá Strandarhjáleigu | 6,72 | Töltrider |
4 | Sarah Maagaard Nielsen | Djörfung frá Miðkoti | 6,67 | Húsasmiðjan |
5-6 | Vilborg Smáradóttir | Sigur frá Stóra-Vatnsskarði | 6,61 | Black Crust Pizzeria |
5-6 | Birna Olivia Ödqvist | Tindur frá Árdal | 6,61 | Nonnenmacher |
7 | Aasa Elisabeth Emelie Ljungberg | Von frá Sumarliðabæ 2 | 6,44 | Vöðlar / Snilldarverk / Sumarliðabær |
Rangárhöllin