Hafþór Sævarsson er sunnlenski matgæðingur vikunnar.
Ég vil þakka landpóstinum og góðvini mínum Róbert Daða Heimissyni fyrir áskorunina og við hendum í eina lauflétta nautasteik þar sem grill sumarið er á næsta leiti.
Nautaribeye með smjörsteiktum aspas og bernaise.
- 3-4 nautaribeye steikur (fer eftir stærð og þykkt)
- Smjör til steikingar
- Salt, pipar og gott steikarkrydd
- Hitið ofninn 160°C.
- Bræðið smjör á pönnu og steikið hvora hlið á háum hita í um 1-2 mínútur (fer eftir þykkt) og kryddið báðar hliðar.
- Færið steikurnar yfir í eldfast mót, hellið smjörinu af pönnunni yfir og eldið í ofni þar til kjarnhiti nær 48°C.
- Takið steikurnar út og látið hvíla í 10mín eða þar til kjarnhiti nær um 57-58°C (fyrir medium-rare steik).
Bernaise sósa
- 8 eggjarauður
- 500 g smjör
- 2 msk. Bernaise essens
- 1-2 msk. fljótandi nautakraftur
- Pipar og salt eftir smekk
- 3-4 msk. Estragon krydd
- Bræðið smjörið í potti og leyfið því að kólna þar til það er ylvolgt (ef það er of heitt eru meiri líkur á að sósan skilji sig).
- Þeytið á meðan eggjarauðurnar þar til þær þykkjast og lýsast .
- Bætið þá smjörinu saman við í mjórri bunu og hrærið á meðan á lágum hraða.
- Bætið restinni af hráefnunum saman við og þeytið stutta stund og berið strax fram.
Smjörsteiktur aspas
- Gott búnt af ferskum aspas
- 3 hvítlauksrif (söxuð smátt niður)
- Væna smjörklípu
- Salt og pipar eftir smekk
- Brjótið trenaða endan af
- Bræðið smjörið á pönnu við meðalháan hita og setjið hvítlaukinn út á.
- Þegar hvítlaukurinn fer aðeins að brúnast má bæta aspasnum við og velta honum reglulega upp úr smjöri/hvítlauk þar til hann fer að mýkjast (um 5-8 mínútur).
- Kryddið með salti og pipar eftir smekk.
Svo skolum við þessu niður með góðri flöskur af Muga rauðvíni.
Njótið vel.
Ég vil skora á stórvin minn og veiðibróðir Jón Steindór Sveinsson, ég veit og hef séð hann að störfum í eldhúinu.