Ölverk Pizza og Brugghús kynnir glænýja tegund af jólaskemmtun fyrir alla einstaklinga, 20 ára og eldri, sem hafa gaman af undrum mannslíkamans og holdlegu gríni .
Laugardaginn 10. desember í nýjum sal Ölverk, Bjórgerði, verður í fyrsta sinn á Suðurlandi boðið upp á Bjórlesk sýningu, sannkallað jólahlaðborð fullorðinsskemmtiatriða sem verður sneisafullt af þokka, gleði, daðri og töfrum.
Eftirfarandi hópur mun fram koma á þessari hátíðlegustu jólaskemmtun Suðurlands og þótt víðar væri leitað:
Dansmærin Bobbie Michelle, sirkus folinn Dan the Man, burlesk drottningin Margrét Maack og ástralska dragdrottningin Enter Serenity.
Bjórlesk sýningin mun hefjast stundvíslega klukkan 21:00
Nauðsynlegt er að tryggja sér miða tímanlega inn á www.tix.is (undir leitarorðinu Bjórlesk)
Til þess að fá mest út úr kvöldstundinni er tilvalið fyrir gesti að mæta snemma á Ölverk fyrir sýninguna og bragða á desember matseðlinum en jólapizzur og jóladrykkir að hætti Ölverk klikka aldrei.