Upp úr kl.10:30 fengu stjórnendur Vallaskóla á Selfossi þær upplýsingar að lögreglan hafi lokað vesturhluta skólalóðar við Tryggvagötu vegna mögulegrar sprengjuhættu. Grunur leikur á um að sprengja liggi á götunni á gatnamótum Tryggvagötu og Engjavegar. Allir starfsmenn og nemendur á yngsta stigi og í Ú-stofum hafa verið beðnir að halda sig inni á meðan sprengjudeild athafnar sig. Ekki er talin þörf á að rýmingu skólans eða því að senda nemendur heim.
Í vikunni fallaði dfs um kraftmiklar og stórhættulegar heimatilbúnar sprengjur sem hafa valdið usla á Selfossi undanfarna daga.
![](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2022/09/IMG_4827-2.jpg?resize=696%2C464&ssl=1)