Vosbúð nytjamarkaður færði Heilbrigðisstofnun Suðurlands í Vestmannaeyjum nýverið peningagjöf að upphæð 200.000 kr.
Peningunum mun verða varið í búnað fyrir stofnunina í Vestmanneyjum. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Vosbúð gefur til stofnunarinnar og eru forsvarsmönnum nytjamarkaðarins færðar innilegustu þakkir fyrir gjöfina og þann góða hug sem að baki býr.