Magnað var það um Verslunarmannahelgina á Selfossi, þegar nýji miðbærinn breiddi faðminn móti þúsundum gesta og risaskjárinn kastaði Brekkusöng Selfyssingsins Magnúsar Kjartans Eyjólfssonar yfir hafið og heim. Magnús er for-söngvari og gítarleikari Stuðlabandsins. Herjólfsdalur ómaði af söng og sama staða var í tröppusöng Selfyssinga á Brúartorgi. Ekki laust við að Egill Thorarensen tæki undir þegar sungið var ,,ég er kominn heim.” Bergmálið er enn að endur-kastast frá Ingólfsfjalli. Miðbærinn nýji hefur sannað enn eitt gyldi sitt að við eigum magnað ,,Álfaskeið,” á ný þar sem héraðsbúar og gestir okkar sletta úr klaufunum. Þegar ég segi Álfaskeið er ég að vísa til æsku minnar þegar Álfa-skeiðshátíðir voru haldnar á hverju sumri eða þjórsártúnsmótin. Með stolti getum við nú sagt að hér í sveitarfélaginu okkar Árborg sé kominn einn flottasti miðbær í Evrópu, veitingar-staðir, verslanir, samkomustaðir að opna og svo þetta magnaða Brúartorgi með risaskjá. Þó er aðeins um einn fjórði af þessum ævintýralega miðbæ risinn. Framtíðin er björt og lífið skemmtilegt.
Guðni Ágústsson