![Vor í lofti í Listagjánni Vor í lofti í Listagjánni](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2022/05/maxresdefault.jpg?fit=768%2C432&ssl=1)
Ásdís Hoffritz hefur stundað listsköpun í rúm tuttugu ár, en hafði aldrei gefið sköpunargáfunni lausan tauminn fyrir þann tíma.
Í dag er hún nánast óstöðvandi þegar kemur að listsköpun og hefur Ásdís boðið gestum og gangandi upp á fallega vatnslitasýningu sem ber titilinn Vor í lofti, í Listagjá Bókasafns Árborgar, ásamt því að sýna lystilega útskorna fugla í glugga safnsins.