Knattspyrnudeild Selfoss og sunnlenska ballhljómsveitin, Stuðlabandið, hafa undirritað þriggja ára samstarfssamning. Meistaraflokkslið karla og kvenna munu nú bera merki Stuðlabandsins framan á keppnistreyjum sínum næstu þrjú árin.
Stuðlabandið ættu allir Sunnlendingar að þekkja en hljómsveitin er ein sú allra vinsælasta á landinu um þessar mundir. Flestir meðlimir sveitarinnar léku með yngri flokkum Selfoss í knattspyrnu og því tenging þeirra við knattspyrnuna á Selfossi sterk.
„Við erum virkilega spenntir fyrir þessu samstarfi og erum mjög ánægðir að geta tekið þátt í starfinu með þessum hætti og stutt okkar fólk næstu árin. Svo hvetjum við auðvitað alla Sunnlendinga til að fjölmenna á völlinn í sumar og taka þátt með okkur.“ segir Marinó Geir Lillendahl, trommari Stuðlabandsins.
Búningurinn var formlega frumsýndur í Mosfellsbæ í siðustu viku þar sem kvennalið Selfoss landaði öruggum sigri á Aftureldingu í 1. umferð Bestu deildarinnar í knattspyrnu.
![](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2022/05/Unknown-2.jpeg?resize=696%2C464&ssl=1)
![](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2022/05/Unknown-3.jpeg?resize=696%2C595&ssl=1)
![](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2022/05/Unknown-1.jpeg?resize=696%2C488&ssl=1)