Sunnlenski matgæðingurinn að þessu sinni er Sigríður Karlsdóttir.
Ég þakka Hrafnhildi systur minni fyrir áskorunina. Ég hef gaman af því að elda mat og þessi uppskrift er í miklu uppáhaldi hjá mínu fólki.
Kjúklingaréttur með ostasósu og sætum kartöflum
3 kjúklingabringur
1 sæt kartafla
1 mexíkóostur
1 piparostur
Hálf krukka saxaðir sólþurrkaðir tómatar
Nautakraftur eftir smekk
Hálfur lítri rjómi
Matarolía
Salt og pipar
Undirbúningur:
Skerið kartöfluna í um það bil 1 cm sneiðar og steikið á pönnu, ekki elda alveg í gegn. Brúnið kjúklingabringur á pönnu og kryddið með salti og pipar, ekki þarf að elda í gegn þar sem kjúklingurinn fer í ofn. Ostarnir rifnir niður, settir í pott með rjóma, nautakrafti og sólþurrkuðum tómötum og látið malla við vægan hita þar til osturinn er bráðinn.
Kjúklingur skorinn í bita, settur í eldfast mót, ostasósa sett yfir, kartöflusneiðar skornar í teninga og settar ofaná. Bakað við ca. 180 gráður í um það bil 25 mínútur.
Borið fram með góðu salati.
Ég skora á Guðfinnu Gunnarsdóttur dóttur mína að koma með uppskrift í næsta blaði. Hún er mjög góður kokkur og kemur örugglega með spennandi uppskrift.