Ég þakka…….fyrir áskorunina og tek henni að sjálfsögðu.
Ég ætla að gefa ykkur uppskrift af dásamlegum kjúklingarétt. Næringaríkur og saðsamur.
Pestókjúlli ala Telma
- 4x Kjúklingabringa
- 2 krukkur Rautt pesto
- ¾ poki Spínat
- Lítil krukka Fetaostur
- 1 poki ristaðar furuhnetur
- Bankabygg eða hrísgrjón
- Ferskt salat. Salat blandað með rucola, kirsuberjatómatar, bláber og avacado
Hitið ofninn í 180°C. Ristið furuhnetur á pönnu í nokkrar mínútur og setjið til hliðar. Sjóðið hrísgrjón eða bankabygg. Skerið spínat og setjið í skál ásamt pestóinu, fetaostinum (ég nota ekki olíuna) , furuhnetunum og blandið vel saman.
Skerið „vasa“ í kjúklingabringurnar og setjið fyllinguna inní, raðið bringunum í eldfast mót og kryddið með salt og pipar. Setjið afganginn af fyllingunni yfir bringurnar
Bakið kjúklingabringurnar í 45 mín.
Skerið í salatið á meðan kjúklingurinn er í ofninum.
Berist fram með bors á vör 😉
Eftirréttur
Gott er að hafa hann bara einfaldan. Rúlla út í HUPPU og ná í bragðaref á línuna. Ég fæ mér stóran huppuref með Huppuís, kókosbollu, þrist, lakrískurl og smá jarðaberjasósa.
Njótið vel 🙂