Lið Byko sigrar parafimi Víking Brugghús og Coca-Cola í Suðurlandsdeildinni 2022, sem fram fór þriðjudaginn 1. mars síðastliðinn. 56 knapar voru skráðir til leiks sem öttu kappi í 28 pörum. Hvert par skipað einum áhugamanna og einum atvinnumanni.
Sjaldan eða aldrei hefur keppni í parafimi verið jafn sterk og hún var á þriðjudaginn. Atriðin vel undirbúin og sýningarnar frábærar!
Hægt er að sjá Parafimi Suðurlandsdeildarinnar á Alendis TV.
Þau Elin Holst og Sævar Örn Sigurvinsson leiddu eftir forkeppni og liðsfélagar þeirra úr liði Byko þar rétt á eftir. Það fór svo að liðsfélagar þeirra Brynja Amble og Árni Sigfús Birgisson skákuðu þeim og sigruðu Parafimi 2022 með frábæra sýningu. Lið Byko var því í 1. og 2. Sæti og leiðir því liðakeppnina eftir fyrstu grein!
Eftir fyrstu grein er því staðan í liðakeppninni eftirfarandi:
- BYKO – 110 stig
- Krappi – 100 stig
- Árbæjarhjáleiga/Hjarðartún – 90 stig
- Nonnenmacker – 86 stig
- Smiðjan Brugghús – 82 stig
- Húsasmiðjan – 63 stig
- Slippfélagið – 59 stig
- Töltrider – 58 stig
- MúrX / Klúbbhús – 42 stig
- Hemla / Hrímnir / Strandarhöfuð – 34 stig
- Vesturkot – 32 stig
- Vöðlar / Snilldarverk / Sumarliðabær – 28 stig
- Fet – 16 stig
- Efsta-Sel – 6 stig
Heildarniðurstöður verða birtar á Facebook síðu Suðurlandsdeildar: www.facebook.com/Suðurlandsdeild.
Næsta grein er fjórgangur ZO-ON þriðjudaginn 15. mars, fylgist með á Facebook-síðu Suðurlandsdeildarinnar.