Kvenfélögin í Flóahreppi standa sameiginlega að basar sem haldinn verður í félagsheimilinu Þingborg laugardaginn 6.nóvember 2021 kl. 13-17.
Innkoma basarsins rennur til Krabbameinsfélags Árnessýslu og verður nýtt í sérhæfða endurhæfingu í kjölfar krabbameinsmeðferðar sem er ný þjónusta í þróun hér á suðurlandi..
Kostnaðurinn við að halda úti sérhæfðri endurhæfingu í kjölfar krabbameinsmeðferðar felst í að greiða fagmenntuðu fólki þá vinnu sem það leggur inn í verkefnið. Fagmenntunin er fjölþætt enda er lögð áhersla á andlega, líkamlega og félagslega þætti.
Fjölbreytt vandað handverk verður til sölu, ásamt kökubasar og vöfflusölu.
Tekið verður við greiðslukortum.
Við hlökkum til að sjá sem flesta,
kvenfélög Gaulverjabæjarhrepps, Hraungerðishrepps og Villingaholtshrepp