![Allt að smella saman Allt að smella saman](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2017/06/0R7B4505.jpg?fit=768%2C554&ssl=1)
Undanfarna daga hefur verið í nógu að snúast hjá bæjarfélögum landsins, við undirbúning hátíðarhalda á morgun 17. júní. Í Hveragerði og á Selfossi er allt að smella saman en í vikunni var gróðursetning í fullum gangi í blómabænum Hveragerði. Það er Sigurrós Jóhannsdóttir hjá Umhverfisdeild sem sér til þess að garðurinn Smágarðar er nú blómum prýddur. Samkvæmt dagskrá hefjast hátíðarhöld í Lystigarðinum í Hveragerði kl. 10:30 á morgun 17. júní.
![Baldur Rafn Gissurason við undirbúning á hátíðarsvæðinu á Sigtúnsgarði Selfossi, seinnipartinn í dag.](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2017/06/0R7B4557-1.jpg?resize=1000%2C1000&ssl=1)
Í dag var verið að koma fyrir útisviði á hátíðarsvæðinu á Sigrúnartúni, Selfossi og í stóra tjaldinu var Baldur Rafn að leggja hönd á lokafrágang, en dagskráin hefst þar kl. 21:00 í kvöld, með tónleikum og öðru skemmtiefni.