-6.3 C
Selfoss

Veglegur styrkur til meðferðarstarfs Sigurhæða

Vinsælast

Ónýtt kerfi

Ég borga glaður skatta

Jólabasar á Eyrarbakka

Lyftistöng fyrir samfélagið

Svandís Svavarsdóttir heil­brigðisráðherra úthlutaði hinn 1. júní sl. rúmlega 28 mill­jónum króna í gæða- og nýsköpunarstyrki til alls 13 verkefna. Verkefnin þurftu að hafa skýran ávinning fyrir heil­brigðis­þjónustuna og þann hóp sem þjónustan beinist að. Hæstu styrkirnir námu fjórum milljónum króna og hlutu tvö verkefni styrk að þeirri upphæð. Sigur­hæðir, í samvinnu við Heil­brigðisstofnun Suðurlands, fékk fjórar milljónir króna til þess að þróa faglegan hluta meðferðarstarfs Sigurhæða.

Öruggur vettvangur í skjóli fagfólks
Sigurhæðir er úrræði fyrir konur á Suðurlandi sem eru eða hafa verið þolendur ofbeldis, hvort sem það er kynferðislegt, andlegt, líkamlegt eða til­finn­ingalegt. Innan Sigurhæða er þeim boðinn öruggur vettvangur og aðstoð fagfólks til að vinna úr áföllum sem eiga rætur í ofbeldinu. Sigurhæðir eru stað­settar að Skólavöllum 1 á Sel­fossi og hófst starfsemin 22. mars sl. Frá þeim tíma hafa alls um 40 konur leitað til Sigur­hæða.
Frumkvæðið að stofnun Sigur­hæða tóku Sor­opti­mista­systur á Suður­landi, en sam­starfs­aðilar í verk­efninu eru Heil­brigðis­stofnun Suður­lands, lög­reglan á Suðurlandi, öll sunn­lensk sveitarfélög, Mann­réttinda­skrifstofa Íslands og Kvenna­ráðgjöfin. Auk þess að bjóða konum sérhæfða meðferð eru mark­mið Sigurhæða einnig að skapa þessum samstarfs­aðilum vettvang til að efla með sér samstarf og samhæfingu í þjón­ustunni við þennan hóp skjól­stæðinga og í þriðja lagi að auka vitund og þekkingu á kynbundnu ofbeldi meðal almennings, fag­aðila og samstarfsaðila í verk­efninu með þjálfun og fræðslu.

Sérhæfður stuðningur í höndum fagfólks
Þrír sérhæfðir meðferðar­aðilar hafa verið ráðnir til Sigur­hæða. Elísabet Lorange list­meðferðar­fræðingur, Helga Jóna Jónsdóttir fjölskyldu­með­ferðar­fræðingur og Jóhanna Krist­ín Jónsdóttir sálfræðingur. Elísa­bet og Helga Jóna eru reynslu­miklir meðferðaraðilar sem sjá um forviðtöl og stuðn­ings­viðtöl ásamt því að sinna hóp­meðferðarstarfi Sigur­hæða. Jóhanna Kristín er almennur sál­fræðingur með viðbótar­menntun á sviði meðferðar og hefur sér­hæfða þjálfun og reynslu í EMDR áfallameðferð. Sor­optimistasystur manna vaktir sem sinna móttöku, tíma­pönt­unum og síma, en koma að öðru leyti ekkert að málefnum skjól­stæðinga. Hafa þær allar sótt undir­búnings­námskeið vegna starfa sinna ásamt því að undir­rita þagnareið.
Innan Sigurhæða er boðið upp á einstaklingsviðtöl, stuðn­ings­viðtöl, ráðgjöf, hópmeð­ferðar­starf, viðtöl við lögreglu og ráðgjöf frá Kvennaráðgjöfinni um lagaleg málefni. Í hópmeð­ferðarstarfinu hittist hver hópur 10 sinnum og er meðal annars beitt aðferðum listmeðferðar í hópastarfinu. EMDR áfalla­meðferðin er gagnreynd sál­fræði­meðferð sem er ætluð skjól­stæðingum Sigurhæða á síðari stigum meðferðar. Með EMDR meðferð er hægt að meðhöndla hvoru tveggja, nýleg eða eldri áföll skjólstæðinga og ekki er gerð krafa um greiningu áfallastreitu til að meðferð geti hafist. Í EMDR er skjólstæðingur leiddur með ábyrgum hætti í gegnum þá erfiðu upplifun sem áfallið felur í sér, hvort sem um eitt einstakt tilvik er að ræða, eða upplifun erfiðrar lífreynslu sem hefur varað yfir tíma. Skilgreining á áfalli miðast við alvarlega streituvaldandi lífsreynslu sem hefur ógnað lífi, heilsu og/eða sjálfsmynd viðkomandi og áfallameðferðar er þörf ef skjólstæðingur upplifir að reynslan fylgi honum og hann nái ekki að komast yfir hana af sjálfsdáðum.
Sigurhæðir er fyrsta úrræðið á sviði þjónustu við þolendur kynbundins ofbeldis á Íslandi sem byggir á EMDR áfallameðferð og er nýmælið í þjónustunni við þennan hóp því einkum fólgið í henni.
Í Sigurhæðum er lögð áhersla á persónulega nálgun þar sem konur fá tækifæri að vinna á eigin hraða og út frá eigin forsendum. Öll þjónusta er gjaldfrjáls og nafn­leyndar er gætt. Sigurhæðir er fyrsta og hingað til eina sér­hæfða úrræðið á þessu sviði sem starf­rækt er á Suðurlandi.

Frekari upplýsingar má nálgast á sigurhaedir.is og í síma 834 5566.

Nýjar fréttir