![Kona slasaðist við Seljavallalaug Kona slasaðist við Seljavallalaug](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2017/06/seljavallalaug.jpg?fit=542%2C359&ssl=1)
Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Vík og Hvolsvelli fóru í nótt að Seljavallalaug undir Eyjafjöllum. Þar hafði ung kona runnið í fjallshlíð og slasað sig á fæti allnokkuð frá vegi.
Í tilkynningu frá Landsbjörg kemur fram að tveir hópar björgunarmanna hafi farið á vettvang og að þurft hafi að bera konuna allnokkra vegalengd svo og vaða yfir á áður en hægt var að komast að sjúkrabíl. Tókst það um þrjúleytið í nótt og var henni þá ekið á sjúkrahús til aðhlynningar.