Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands verður slæmt veður á sunnan og suð-austanverðu landinu seint á morgun, laugardag. „Seint á morgun gengur í austan- og norðaustan storm eða rok um landið S- og V-vert, með snjókomu eða skafrenningi og varasömum akstursskilyrðum. Sjá gular og appelsínugular viðvaranir.“
Appelsínugul viðvörun
Austan 20-28 m/s með mjög snörpum vindhviðum við fjöll, hvassast austantil á svæðinu. Einnig má búast við snjókomu eða slyddu og skafrenningi með lélegu skyggni og hættulegum akstursskilyrðum. Ekkert ferðaveður.