Skrifað hefur verið undir samninga um endurbyggingu húsnæðisins að Austurvegi 4 á Hvolsvelli. Húsið er í eigu Rangárþings eystra og staðsett við þjóðveg 1.
Til stendur að stækka verslunarhúsnæðið og gera breytingar á verslunarrekstri. Þá verður einnig byggt ofan á verslunarhlutann. Í húsinu verða jafnframt allar skrifstofur Rangárþings eystra. Þangað flytur einnig skrifstofa byggingarfulltrúa þannig að öll skrifstofustarfsemi verður á sama stað. Einnig verður í húsnæðinu önnur skrifstofustarfsemi.
Jáverk ehf. mun sjá um þessar breytingar. Þess má geta að fyrirtækið er einnig að byggja viðbyggingu við Hjúkrunar- og dvalarheimilið Kirkjuhvol. Sú framkvæmd gengur vel. PZ verkfræðistofa í Vestmannaeyjum sér um verkfræðiþáttinn í báðum byggingunum.