![Heimsmeistari sýnir töfrabrögð á Suðurlandi Heimsmeistari sýnir töfrabrögð á Suðurlandi](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2017/05/shinlim1.jpg?fit=768%2C723&ssl=1)
![](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2017/05/shinlim2.jpg?resize=200%2C300&ssl=1)
Shin Lim, heimsmeistari í töfrabrögðum, er á leiðinni til Íslands. Hann verður með sýningar í Hörpunni, Hofinu á Akureyri og víða um land í júní. Shin Lim heillaðist af landi og þjóð eftir að hafa séð myndbandið sem Justin Bieber tók þegar hann var hér á ferð.
Shin Lim verður með sýningu í leikhúsinu í Hveragerði föstudaginn 2. júní kl. 19:30, í FSu á Selfossi laugardaginn 3. júní kl. 14:30, í Hvoli á Hvolsvelli laugardaginn 3. júní kl. 19:30 og í Leikskálum í Vík sunnudaginn 4. júní kl. 19:30. Lengd sýningarinnar er um 90 mínútur með hléi.
Það styttist í að Shin Lim fari á samning í Las Vegas svo þetta er síðasta tækifæri fyrir fólk að sjá hann. Til að setja þetta í samhengi við tónlistariðnaðinn þá er þetta svipað og U2 og Bono væru að heimsækja Ísland.