Undanfarin ár hefur prjónahópurinn „Síðasta umferðin“ hjá Rauða krossinum í Árnessýslu haldið basar fyrsta vetrardag. Vegna Covid-19 höfum við ekki getað haldið hann.
Þetta árið verðum við með jólamarkað að Eyravegi 23 á Selfossi. Markaðurinn opnar 1. desember nk. Á markaðinum má kaupa mjög fallegt handverk á góðu verði.
Vegna fjöldatakmarkana verður ekki hægt að hleypa inn nema í 5 í einu. Við minnum á að það er grímu og hanska skylda. Allur ágóði af markaðinum mun renna í sjóðinn góða.
Opnun jólamarkaðarins er sem hér segir:
- Þriðjudag 1. desember kl. 11 – 15 og 16 -18.
- Miðvikudag 2. desember kl. 11 – 15 og 16 – 18.
- Fimmtudag 3. desember kl. 11 – 15.
- Laugardag 5. desember kl. 11 – 14.
Eftir það verður opnunartíminn:
Mánudaga til fimmtudaga frá kl 11 – 14.