Framkvæmdir hafa undanfarið staðið yfir á gatnamótum Eyravegar og Kirkjuvegar á Selfossi og hefur verið lokað fyrir umferð frá 24. apríl sl. Að sögn Jóhanns Ágústssonar eftirlitsmanns hefur verkið í heild gengið vel og lítið verið um óvæntar uppákomur. „Það kemur samt alltaf eitthvað upp á. Einn daginn kom gosbrunnur og loka þurfti fyrir heita vatnið í nokkra klukkutíma. Svo fór heill dagur í að brjóta steypuklump sem lagnir voru í gegnum,“ segir Jóhann.
Verktakinn hefur leyfi til að hafa gatnamótin lokuð í allt að sex vikur þannig að stefnt er að því að opna þau í byrjun júlí. Verkið heldur áfram í sumar með vinnu á Kirkjuvegi þar sem m.a. nýjar stofnlagnir verða lagðar.