![Daði vekur athygli utan landsteinanna Daði vekur athygli utan landsteinanna](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2020/02/maxresdefault-1.jpg?fit=768%2C432&ssl=1)
Síðastliðinn föstudag gáfu Daði og Gagnamagnið út myndband við lagið sitt Think about things. Myndbandið (og lagið) fékk strax mjög góðar viðtökur á Íslandi og er lagið nú að vekja athygli utan landsteinanna en það hefur farið eins og eldur í sinu á veraldarvefnum.
Lagið hefur ratað til breskra, þýskra og hollenskra fjölmiðla, en þeir hafa deilt laginu á samfélagsmiðlum sínum ásamt því að Eurovision-bloggarar hafa fjallað um lagið á vefsíðum sínum. Meira að segja náði lagið að fanga athygli Hollywood-leikarans og Íslandsvinarins, Russel Crowe, en hann deildi laginu á Twitter-síðu sinni.
Örlög Daða og Gagnamagnsins ráðast laugardaginn 29. febrúar þegar úrslitakvöld Söngvakeppninnar fer fram.