Kvenfélagið Eining í Holtum heldur aðventuhátíð að Laugalandi sunnudaginn 1. desember kl. 13-16.
Tombólan vinsæla – engin núll. Söluborð með ýmsan varning til sölu, tónlistarflutningur, bókakynning o.fl. Jólasveinar koma í heimsókn og kveikt verður á jólatré. Heitt kakó og vöfflur verða seldar og rennur allur ágóði í Barnasjóð Einingar.
Kvenfélagskonur vonast til að sjá sem flesta og njóta fyrsta sunnudags í aðventu saman.