Ábyrg ferðaþjónusta – fleiri skref í átt að sjálfbærni
20. nóvember í Þekkingarsetrinu í Vestmannaeyjum kl. 11:30
21. nóvember á Hótel Höfn kl. 12:00
26. nóvember á Hótel Örk í Hveragerði kl. 11:30
Fjölbreytt og skemmtileg erindi um ábyrga ferðaþjónustu og þau verkfæri sem nýtast fyrirtækjum til að viðhalda gæðum og sjálfbærni til framtíðar.
Dagskrá:
- Ábyrg ferðaþjónusta – Laufey Guðmundsdóttir fjallar um tæki og tól sem hægt er að nota til þess að taka fleiri skref í átt að sjálfbærni
- Straumar og stefnur – Dagný Jóhannsdóttir fer yfir það nýjasta í umræðum um sjálfbærni í ferðaþjónustu út frá erindum á WTM í London
- Umhverfis Suðurland – verkfæri til handa fyrirtækjum um hvað þau geta gert strax varðandi umhverfismál í sínum rekstri
- Fræðslunet Suðurlands – kynnir námsframboð í ferðaþjónustu á Suðurlandi, Viska fræðslu- og símenntunarmiðstöð Vesmannaeyja kynnir námsframboð á fundinum í Vestmannaeyjum
- Hæfnisetur ferðaþjónustunnar – kynnir verkfærakistu Hæfniseturs ferðaþjónustunnar
Fundirnir eru opnir öllum að þessu sinni. Boðið verður upp á súpu og brauð á fundunum og því er mikilvægt að skrá sig. https://forms.gle/HPXPqujRVMqrcPyr9