![Virkjum hæfileikana – alla hæfileikana Virkjum hæfileikana – alla hæfileikana](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2019/10/maxresdefault.jpg?fit=768%2C432&ssl=1)
Vinnumálastofnun stóð fyrir „Fyrirmyndarviku“ dagana 14. – 18. október sl. Markmið vikunnar var að vekja athygli á mikilvægi þess að auka möguleika fólks með skerta starfsgetu á fjölbreyttri atvinnuþátttöku. Vinnumálastofnun biðlar til fyrirtækja á Suðurlandi að hafa samband ef áhugi er á að ráða einstaklinga með skerta starfsgetu til starfa. Við leitum að allskonar störfum stórum og smáum.