Félag eldri borgara í Hveragerði telur um 230 félaga. Þar á meðal eru tólf konur sem verða (eða eru orðnar) áttræðar á árinu 2017, sem sagt fæddar 1937. Það reiknast vera 5,2 prósent félagsmanna. Þriðjudaginn 25. apríl komu þær saman á heimili Guðlaugar Berglindar Björnsdóttur í kaffisamsæti til að minnast þessara tímamóta.
Tólf konur í Hveragerði áttræðar á árinu
![eldriborgarar Frá vinstri: Helga Baldursdóttir, Helga Haraldsdóttir, Arnfríður Gunnarsdóttir, Gillý Skúadóttir, Guðlaug Berglind Björnsdóttir, Pálína Agnes Snorradóttir, Ragnheiður Guðrún Þorgilsdóttir, Greta S. Jónsdóttir, Edda Þorkelsdóttir, Elinborg Guðmundsdóttir, Ásdís Dagbjartsdóttir og Steina H. Aðalsteinsdóttir. Ljósmynd: Jóhann Gunnarsson.](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2017/04/eldriborgarar.jpg?resize=1000%2C550&ssl=1)