Hjálparsveitin Tintron fékk á dögunum 400.000 króna styrk frá Kvenfélagi Grímsneshrepps til búnaðar og tækjakaupa. Styrkurinn kemur í góðar þarfir að sögn Jóhannesar, formanns Tintron, en fyrir liggur að fjölga börum og annarskonar búnaði til flutnings og aðhlynningar á sjúklingum. Með þessu styttist viðbragðstími og björgunarmál innan sveitarfélagsins styrkjast.
Björgunarfélagið kemur á framfæri sínum bestu þökkum fyrir ómetanlegan stuðning.