Síðasta umferð Íslandsmeistaramótsins í mótokross fór fram í Bolaöldu þann 31. ágúst. Iðkendur frá mótokrossdeild Selfoss hafa náð góðum árangri í keppnum sumarsins og var keppnin í Bolöldu engin undantekning.
Í 85 cc flokki varð Alexander Adam Kuc í 2. sæti en í 85 cc flokki yngri varð Eric Máni Guðmundsson í 2. sæti og Bergrós Björnsdóttir í 4. sæti.
Í unglingaflokki <17 varð Bjarki Breiðfjörð Björnsson í 3. sæti og Ármann Baldur Bragason í 4. sæti.
Í MX2 varð Heiðar Örn Sverrisson í 2. sæti. Í kvennaflokki 30+ varð Ragnheiður Brynjólfsdóttir í 3. sæti.
Frábær árangur hjá okkar fólki.
![Alexander Adam t.v. Mynd/Umf. Selfoss](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2019/09/Mótokross-Alexander-Adam-Kuc-85cc-flokkur.jpg?resize=696%2C464&ssl=1)
![Bjarki Breiðfjörð t.h. Mynd/Umf. Selfoss](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2019/09/Mótokross-Bjarki-Breiðfjörð-Unglingaflokkur-yngri-en-17-ára.jpg?resize=696%2C464&ssl=1)
![Eric Máni t.v. og Bergrós t.h. Mynd/Umf. Selfoss](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2019/09/Mótokross-Eric-Máni-og-Bergrós-85cc-flokkur-yngri.jpg?resize=696%2C464&ssl=1)