Julian er fundinn.
Lögreglan á Suðurlandi leitar að Julian Carli Kristóferssyni, fæddum árið 2003.
Síðast er vitað um ferðir Julians í gærkvöldi þann 30.07. 2019 um kl. 23 á Ingólfstorgi.
Julian er búsettur í Hveragerði.
Julian var klæddur í grásvartar gallabuxur, svarta stóra dúnúlpu og líklega Converse skó. Julian er grannvaxinn með brúnt axlarsítt liðað hár sem hann hefur yfirleitt í teygju.
Ef einhver hefur upplýsingar um ferðir hans, vinsamlega hringið í síma 444 2000 á milli kl. 08:00 og kl. 16:00 eða í 112.