Þann 13. júní sl. fylgdu átta nemendur úr 7.–10. bekk Hvolsskóla, forseta Þýskalands, hr. Frank-Walter Steinmeier og forseta Íslands, hr. Guðna Th. Jóhannessyni, að Sólheimajökli. Þeim til fylgdar voru Jón Stefánsson verkefnastjóri Grænfánans sem leitt hefur þetta verkefni og Birna Sigurðardóttir skólastjóri Hvolsskóla.
Forsetarnir og fylgdarlið skoðuðu eldfjallasýninguna á LAVA og síðan kynntu krakkarnir fyrir þeim verkefni sem hefur verið í gangi í 9 ár. Verkefnið snýst um að mæla hop Sólheimajökuls. Mælingin sem tekin var haustið 2018 sýndi að jökullinn hefði hopað um 379 metra síðan haustið 2010. Krakkarnir röltu með hópinn að rótum jökulsins, sögðu frá og svöruðu spurningum, bæði forsetanna og fjölmiðla.