Auðbjörg Brynja Bjarnadóttir, ljósmóðir og hjúkrunarstjóri hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Kirkjubæjarklaustri, var sæmd riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu þann 17. júní sl. fyrir framlag til heilbrigðis- og björgunarstarfa í heimabyggð.
Forseti Íslands sæmdi samtals sextán Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Hér má sjá hverjir hlutu þann heiður.