Íbúðir í Edenbyggð, sem er nýtt íbúðahverfi við göturnar Aldinmörk og Edenmörk í Hveragerði, eru nýlega komnar í sölu. Framkvæmdir hófust í maí 2018 en hverfið er skipulagt með framtíðina í huga, með frábæra tengingu við göngustíga og þægilega aðkomu að bílastæðum með hleðslumöguleikum fyrir rafbíla. Miðsvæðis er leiksvæði og sælureitur með litlum gróðurhúsum sem íbúar geta fengið að njóta góðs af.
Alls verða 77 íbúðir í hverfinu en í fyrsta áfanga verða 25 íbúðir afhentar. Þær eru 63 til 80 fermetrar að stærð, 2–4 herbergja. Áætlaður afhendingartími er frá júlí 2019. Íbúðum verður skilað fullbúnum en án gólfefna.