Bræðurnir Gunnar og Marteinn Sigurgeirssynir hlutu menningarverðlaun Árborgar 2019 en verðlaunin voru veitt við hátíðlega athöfn á sumardaginn fyrsta við opnun menningarhátíðarinnar Vor í Árborg.
Báðir hafa þeir um langt skeið komið að kvikmyndagerð og ljósmyndun og liggur m.a. eftir þá fjöldi heimildarmynda sem tengist bernsku- og uppvaxtarslóðum þeirra á Selfossi.
Marteinn er kennari að mennt og hefur stærstan hluta ævi sinnar unnið við einhverskonar kennslu og miðlun ásamt gerð heimildarmynda.
Gunnar rak Ljósmyndastofu Suðurlands/Filmverk í 20 ár eða fram til ársins 2009. Hann myndað m.a. mannlíf og ýmsa viðburði er tengjast sögu Selfoss. Einnig safnaði hann þúsundum ljósmynda fyrir Héraðsskjalasafn Árnesinga.